Upplýsingar á vef ESB 

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

FRÉTTIR

Seinni umsóknarfrestur um námsheimsóknir rennur út þann 15. október 2010.

Umsóknarfrestir um námsheimsóknir á skólaárinu 2010 - 2011 eru tveir. Fyrri umsóknarfrestur var 31. mars 2010 og sá seinni 15. október fyrir tímabilið mars til júní 2011.

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum vegna seinna tímabils 2010 - 2011 og rennur umsóknarfrestur út þann 15. október 2010.

Nálgast má kynningarbækling með nánari upplýsingum um námsheimsóknirnar hér: Umsóknir skal prenta út og senda til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, umsjón: Ásta Sif Erlingsdóttir.

 

Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins  hefur nú úthlutað því fjármagni sem til ráðstöfunar er árið 2010 á grundvelli umsókna sem bárust 5. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 34 umsóknir þar sem sótt var um 942 þúsund evrur. Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum eða um 68 m.kr., var úthlutað  til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga. 


Núna var í fyrsta sinn hægt að sækja um vottun mannaskiptaverkefna sem felur í sér vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin.  Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti aðilinn til að hljóta slíka vottun sem veitt er á grundvelli mjög góðra verkefna og vandaðrar framkvæmdar.  Námsferðir til Evrópu hafa á undanförnum árum verið hluti af námi í Mótun og nemendur skólans hafa fengið þátttöku sína í slíkum verkefnum að fullu metna sem hluta af náminu.  Núna er reiknað með að evrópskt samstarf verði hluti af náminu í þremur deildum skólans, í Mótun-leir og tengd efni, Teikningu og Textíl.

Okkur langar að frétta af því hvor þátttaka í Leonardo verkefni og dvöl eða heimsókn til Evrópu skipti máli í lífi og starfi þátttakenda.


Erlendir sérfræðingar voru aðalræðumenn á ráðstefnu verkefnisins New Skills Network sem haldin var hér á landi á dögunum.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB ásamt Mennta- og menningarmálaráðuneytinu stendur fyrir lokuðu alþjóðlegu málþingi varðandi stefnumörkun Evrópusambandis um færni til framtíðar (New Skills for New Jobs Agenda). Málþingið ber heitið „Facilitating cooperation between different stakeholders on future skills upgrading and skills matching for jobs“ og er haldið í Reykjavík þann 31. maí til 1. júní n.k. Fimmtán sérfræðingum frá jafn mörgum löndum var boðið til þess að taka þátt í málþinginu ásamt samstarfsaðilum verkefnisins „New Skills Network“ sem Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB stýrir.


Eldri fréttir