Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Fjölsótt ráðstefna

Ráðstefna um gæðamál í starfsmenntun og framhaldsfræðslu var haldin þann 9. desember 2011. Mikill áhugi var fyrir málefninu en 120 manns tóku þátt.  Kynnt voru góð dæmi um gæðastarf íslenskra fræðsluaðila og evrópsk verkefni á sviði gæðamála sem unnin hafa verið af íslenskum aðilum. Norskur sérfræðingur í gæðakerfum  kynnti evrópsk verkfæri sem þróuð hafa verið til að efla starfsmenntun og framhaldsfræðslu í Evrópu og mikilvægi gæðastarfs í því samhengi.   Í lokin ræddu þátttakendur framtíðarsýn og næstu skref í gæðamálum á Íslandi.

Myndir frá ráðstefnunni

Gæði í starfsmenntun og framhaldsfræðslu - morgunfundur 9. desember 2011, Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Gæði og gæðakerfi eru grundvallarhugtök í umræðu um nám og fræðslu.  Þessi hugtök leika einnig lykilhlutverk í umræðu um samstarf fræðsluaðila og í uppbyggingu gagnkvæms trausts, sem hefur t.d. áhrif á  möguleika nemenda til þess að flytjast á milli skóla, skólakerfa og landa.

Fjallað verður um gæði og aðferðir til að meta nám. Fulltúar fræðsluaðila kynna aðferðir og íslensk dæmi.  Einnig verða kynnt samræmd evrópsk kerfi og í lokin verða umræður í hópum.  Kynningarefni um Leonardo verkefni sem unnin hafa verið á Íslandi á sviði gæðamála mun liggja frammi.

Fundurinn er ætlaður fræðsluaðilum með sérstakri áherslu á gæðafulltrúa, starfsmenntakennara, skólastjórnendur, náms- og starfsráðgjafa og fulltrúa framhaldsfræðslu. 

Dagskrá:

08:00 Skráning og morgunverður
08:15 Opnun ráðstefnunnar , Ólafur Grétar Kristjánsson deildarsérfræðingur hjá mennta-  og menningarmálaráðuneytinu
08:30

Gæðastarf og gæðakerfi; kynningar íslenskra fræðsluaðila:

 

Markvisst vinnustaðanám - kynning
Helen Williamsdóttir Gray, forstöðumaður hjá IÐUNNI fræðslusetri

  EQM, European Quality Mark; gæðakerfi framhaldsfræðsluaðila - kynning
Örn Alexandersson M.Ed., sérfræðingur hjá BSI á Íslandi
  Gæðakerfi og -starf í  Menntaskólanum í Kópavogi, - kynning
Helene Pedersen, fagstjóri hjá Menntaskólanum í Kópavogi
  Hvað finnst notendum um gæði náms- og starfsráðgjafar? - kynning
Andrea Dofradóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
  Gæðastarf hjá Þekkingarneti Þingeyinga - kynning
Helena Eydís Ingólfsdóttir, sviðsstjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga

09:45-10:15

KAFFIHLÉ
10:15

Potential synergies between the European instruments promoting lifelong learning - kynning
Tormod Skjerve
, sérfræðingur í gæðakerfum menntamála hjá Evrópusambandinu (CEDEFOP)

11:15 Hópastarf: Reynsla og framtíðarsýn við innleiðingu gæðakerfa,
Hróbjartur Árnason, lektor hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands leiðir umræður og hugarflug í hópum
 
12:00-12:30

Samantekt og ráðstefnulok
Hróbjartur Árnason, lektor hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands

 

Fundarstjóri: María Guðmundsdóttir upplýsinga- og fræðslufulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar