hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Námskeið fyrir umsækjendur

Árlega eru haldin námskeið fyrir umsækjendur yfirfærsluverkefna. Síðasta námskeið var haldið 14. janúar 2010. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast glærur frá kynningunni.
 

 

Gerð umsókna

Yfirfærsluverkefni er verkefnaflokkur innan Leonardo starfsmenntaáætlunarinnar sem er hluti af Menntaáætlun Evrópusambandsins sem tók gildi í upphafi árs 2007 og heitir á ensku "The Lifelong Learning Programme."  Einn umsóknarfrestur er auglýstur á ári.

Hér fyrir neðan er kynning á almennum atriðum varðandi gerð umsóknar og eru ýmsar hagnýtar upplýsingar hjálagðar. Mikilvægt er að kynna sér vel þessar leiðbeiningar áður en vinna við gerð umsókna hefst.

Umsækjendur yfirfærsluverkefna skulu skila umsóknum sínum á sérstöku rafrænu umsóknareyðublaði sem Evrópusambandið gefur út. Umsóknina er hægt að nálgast undir Umsóknir & Eyðublöð.

Við gerð umsóknarinnar er mikilvægt að kynna sér þær upplýsingar sem Evrópusambandið gefur út varðandi markmið áætlunarinnar, forgangsatriði fyrir hvern umsóknarfrest og leiðbeiningar um gerð umsókna.  Athugið að í gögnunum er fjallað um allar undiráætlanir Menntaáætlunar Evrópusambandssins (Lifelong Learning Programme) og því þurfa umsækjendur í Leonardo að einbeita sér að kaflanum um Leonardo starfsmenntaáætlunina. 

Ýmsar nytsamar upplýsingar

Komdu hugmynd þinni á blað. Hjálagt er eyðublað til að setja upp hugmynd að yfirfærsluverkefni. Þú getur fyllt það út og sent okkur til að fá álit okkar á hugmyndinni (ap(hjá)hi.is)

Handbók fyrir umsækjendur: Guide for applicants - ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir umsækjendur.

Forgangstriði: Upplýsingar um forgangsatriði (.pdf, 184 kb) (Strategic Priorities)

Verkáætlanir: Hér finnur þú kynningu á gerð verkáætlunar (work plan) og vinnupakka (work packages): Gerð verkáætlunar -góð ráð og upplýsingar (.ppt, 123 kb) - 2006 verkefni

Ertu í leit að samstarfsaðila?: Eyðublað fyrir leit að samstarfsaðila

Gátlisti fyrir umsækjendur yfirfærsluverkefna
 

Mat og styrkúthlutanir

Mat og styrkúthlutanir yfirfærsluverkefna  fara fram á Íslandi og er stýrt af Landskrifstofu Menntaáætlunarinnar sem er til húsa í Háskóla Íslands (Leonardo skrifstofan er í Tæknigarði, Dunhaga 5).  Tveir óháðir matsaðilar meta umsóknir en stjórn landskrifstofunnar tekur ákvörðun um styrkúthlutanir.

Hér geturðu skoðað eyðublaðið sem matsmenn nota við mat umsókna: Eyðublað fyrir matsmenn TOI umsókna (Dæmi frá 2009).pdf.

 

Frekari upplýsingar fyrir umsækjendur

Upplýsingar fyrir umsækjendur eru einnig birtar á heimasíðu Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins og á heimasíðu Evrópusambandsins.

 

Undirbúningsstyrkir

Undirbúningsstyrkjum er úthlutað á meðan fjármagn sem til ráðstöfunar er til þessa hluta áætlunarinnar er til.  Umsóknum er skilað á rafrænu formi og umsóknir um styrki eru afgreiddar mánaðarlega.  Undirbúningsstyrkir eru flestir á bilinu 1000-1200 evrur (aldrei hærri en 1500 evrur) og er hægt að nota til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Undirrituðum umsóknum ber að skila til Landskrifstofunnar (Leonardohluti í Tæknigarði, Dunhaga 5).

Starfsfólk Landskrifstofunnar veitir nánar upplýsingar um umsóknarferlið og styrkina.

Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar um undirbúningsstyrki

 

Móttaka umsókna og afgreiðsla styrkúthlutana

Umsóknum skal skilað til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, Leonardo starfsmenntaáætlunarinnar, bæði á rafrænu umsóknarformi (eFORM)  og á pappír. 

Undirrituð umókn á pappírsformi  er hin raunverulega og gilda umsókn og skal skila henni í frumriti og í tveimur afritum til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB fyrir klukkan 17:00 á umsóknardegi (26. febrúar 2010 fyrir Yfirfærsluverkefni)

Heimilisfangið er:
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo starfsmenntaáætlunin,  
Tæknigarður, Dunhaga 5,
107 Reykjavík